Opið í dag

12:00-18:00

Líkamleiki | Listamannaspjall

04.03.2018
15:00
Listamannaspjall með Eirúnu Sigurðardóttur, Unu Margréti Árnadóttur og Erni Alexander Ámundasyni í Gerðarsafni. Listamennirnir munu ræða verk sín á sýningunni Líkamleiki og vinna þau öll með gjörninga í verkum sínum. Sýningin Líkamleiki er hugleiðing um líkamann eins og hann birtist í samtímalist. Á sýningunni eru valin verk eftir listamenn sem eiga það sammerkt að vísa í líkamann og líkamleika af ýmsu tagi.  Listamenn sýningarinnar eru Bára Kristinsdóttir, Claire Paugam, Eirún Sigurðardóttir, Elín Hansdóttir, Eva Ísleifsdóttir, Guðrún Benónýsdóttir, Haraldur Jónsson, Hrafnhildur Arnardóttir / Shoplifter, Hrafnkell Sigurðsson, Hreinn Friðfinnsson, Katrín Elvarsdóttir, Klængur Gunnarsson, Margrét Bjarnadóttir, Roni Horn, Sigurður Guðmundsson, Steina, Una Margrét Árnadóttir og Örn Alexander Ámundason. Sýningarstjóri er Brynja Sveinsdóttir. Listamannaspjallið er hluti af viðburðadagskrá Ljósmyndahátíðar Íslands 2018. Aðgangur á safnið gildir á viðburðinn.
GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner